Fanntófell framleiðir skápahurðir eftir máli
Skápahurðirnar okkar eru 17 mm þykkar og henta vel, hvort sem þær eru fyrir heimili, verslanir, veitingahús eða aðra staði.
Skápahurðirnar okkar eru 17 mm þykkar og henta vel, hvort sem þær eru fyrir heimili, verslanir, veitingahús eða aðra staði.
Við framleiðum skápa- skúffufronta úr harðplasti, Fenix, melamin, Rauvisio Fino og Rauvisio Crystal. Skápahurðir er eitt af því sem mótar útlit í eldhúsi á heimili eða veitinga- og kaffihúsum, skrifstofu eða annars staðar. Mikilvægt að skápahurðir séu snyrtilegar, fallegar og vel hannaðar, bæði hvað varðar notagildi og útlit. Einnig þurfa skápahurðir að vera sterkar og þola eðlilega umgengni. Góðar skápahurðir geta því haft mikið að segja hvernig þú nýtur þín í vinnu eða við leik og störf á heimili. Skápahurðir eru 16-19mm þykkir, mikið úrval lita og áferða. Smíðum eftir máli.
Einstaklega fallegt efni í mörgum litum sem lítur út eins og raunverulegt gler en er léttara og sterkara. Mmikið úrval lita, áferð háglans og matt. Hentar vel í m.a. eldhús og baðherbergi.
Með ABS- laser köntum notum við nýja hitaháþrýstitækni sem gerir það að verkum að ekkert lím er notað og sést því engin límfúga. Slík viðloðun er hitaþolin og gerir samskeytin algjörlega vatnsþolin.
Við dagleg þrif á borðplötum er best að nota trefjaklút og vatn, nota skal uppþvottalög á fitu. Hægt er að nota sterkari sápu á skápahurðir, fyrir erfiðari óhreinindi. Óhætt er að nota t.d. þynni ef með þarf til að ná burt erfiðari blettum af skápahurðum.