Skip to main content

Um Fanntófell

Við erum meira en 30 ára

Fanntófell sérhæfir sig í smíði á borðplötum, sólbekkjum, wc skilrúmum, skápahurðum, o.fl. fyrir arkitekta, hönnuði, verktaka, innréttingaframleiðendur og einstaklinga, allt eftir óskum hvers og eins.

Sérsvið okkar er formbeyging (e. postforming) á harðplasti en jafnframt framleiðum við plötur úr límtré, fenix NTM og akrýlsteini. Fanntófell framleiðir borðplötur, sólbekki, veggklæðningar, skilrúm, o.fl. Einnig sérsmíðum við eftir pöntun.

  • Hráefni sem notað er til smíði er allt af miklum gæðum. Nefna má harðplast HPL (e. high pressure laminates) sem er slitsterkt og hitaþolið, akrýlstein frá REHAU og besta fáanlega límtré sem efnissalar hafa upp á að bjóða hverju sinni. Nýtt og einstakt yfirborðsefni fenix NTM sem endurspeglar lítið ljós, kámast lítið hefur mjúka áferð við snertingu.
  • Við framleiðum fyrir arkitekta, hönnuði, verktaka, innréttingaframleiðendur og einstaklinga, allt eftir óskum hvers og eins.

Sagan

Fanntófell ehf var stofnað í Reykholti í Borgarfirði 1987

Stofnendur voru Þórir Jónsson og Sigurður Bragi Sigurðsson. Fanntófell var með framleiðslu sína fyrstu árin í 180 fermetra húsnæði í Reykholti. Framleiðslu var vel tekið og til að koma til móts við þarfir viðskiptavina og aukna eftirspurn markaðsins, var ákveðið árið 1990 að  flytur til höfuðborgarinnar og tekið var á leigu  300 fermetra húsnæði í Kópavogi.

Fanntófell var með framleiðslu sína fyrstu árin í 180 fermetra húsnæði í Reykholti.  Framleiðslunni var vel tekið og til að mæta þörfum viðskiptavina og svara aukninni eftirspurn markaðarins var ákveðið árið 1990 að flytja til höfuðborgarinnar. Félagið tók þá á leigu 300 fermetra húsnæði í Kópavogi og flutti þangað starfsemi sína.

Fljótlega var komin þörf fyrir stærra húsnæði og árið 1995 flytur Fanntófell síðan í Bíldshöfða 12 í 500 fermetra húsmæði. Það dugði skammt og innan skamms var rýmið stækkað og  árið 2016 var fyrirtækið í um 1000 fermetra húsnæði á sama stað.

Í dag höfum við byggt sér útbúið húsnæði undir alla starfsemi okkar sem er 1975 fermetra húsnæði að Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík.