Skip to main content

Skápahurðir

Fanntófell framleiðir skápahurðir eftir máli

Skápahurðirnar okkar eru 17 mm þykkar og henta vel, hvort sem þær eru fyrir heimili, verslanir, veitingahús eða aðra staði.

Skápahurðir

Við framleiðum skápahurðir úr harðplasti, fenix og melamin efni

Við framleiðum skápa- skúffufronta úr harðplasti, Fenix, melamin eftir máli á innréttingar og skápa. Skápahurðir er eitt af því sem mótar útlit í eldhúsi á heimili eða veitinga- og kaffihúsum, skrifstofu eða annars staðar. Mikilvægt að skápahurðir séu snyrtilegar, fallegar og vel hannaðar, bæði hvað varðar notagildi og útlit. Einnig þurfa skápahurðir að vera sterkar og þola eðlilega umgengni. Góðar skápahurðir geta því haft mikið að segja hvernig þú nýtur þín í vinnu eða við leik og störf á heimili. Skápahurðir eru 16-19mm þykkir, mikið úrval lita og áferða. Smíðum eftir máli.

Laserkantar

Með ABS- laser köntum notum við nýja hitaháþrýstitækni sem gerir það að verkum að ekkert lím er notað og sést því engin límfúga. Slík viðloðun er hitaþolin og gerir samskeytin algjörlega vatnsþolin.

Þrif og viðhald

Við dagleg þrif á borðplötum er best að nota trefjaklút og vatn, nota skal uppþvottalög á fitu. Hægt er að nota sterkari sápu á skápahurðir, fyrir erfiðari óhreinindi. Óhætt er að nota t.d. þynni ef með þarf til að ná burt erfiðari blettum af skápahurðum.

Kostir

  • Högg og rispuþolið
  • Auðvelt að þrífa
  • Henta vel á eldhús og bað
  • Smíðum eftir máli

Stærðir

Við framleiðum skápahurðir úr harðplasti eftir máli.

  • Mesta mögulega lengd á skápahurðum er 420 sm
  • Mesta mögulega breidd á skápahurðum er 124 sm

Bæklingur

Rehau