Skip to main content

Sökkulefni

Fanntófell framleiðir sökkulefni eftir máli

Harðplast er vinsæll og hagkvæmur kostur í sökkulefni. Fannófell bíður upp á hágæða harðplast (HPL) þar að lútandi. Við erum með mikið úrval lagerlita af sökkulefni sem hægt er að fá í ýmsum áferðum, s.s. háglans, matt og yrjótt.

Harðplast

Harðplast er góður kostur

Harðplast er viðhaldsfrítt, slitsterkt og endist lengi og hentar vel í sökkulefni fyrir heimili, verslanir, veitingahús og fleiri staði.

Þrif og viðhald

Við dagleg þrif á sökkulefni er best að nota þurran töfrasvamp eða rakan trefjaklút, ásamt því að nota uppþvottalög á fitu. Hægt er að nota sterkari sápu á sökkulefni til að ná af erfiðari óhreinindum. Þvo má plötur með t.d. þynni ef með þarf til að ná burt erfiðari blettum af sökkulefni.

Kostir

  • Slitsterkt
  • Hitaþolið
  • Dregur ekki í sig lit og upplitast ekki
  • Rispur sjást síður á yrjóttri áferð en sléttri

Stærð

Fanntófell framleiðir eftir sökkulefni eftir máli. Harðplastið í sökkulefnin er límt á þunnar plötur (7 mm-17 mm).

  • Mesta mögulega lengd á sökkulefni er 420 sm
  • Mesta mögulega breidd á sökkulefni er 124 sm

Litir

Við erum með valda liti á lager hjá okkur sem henta vel fyrir sökkulefni. Við mælum með stálklæðningu í sökkulefni, sjá mynd (litanúmer 2000)

Athugið að litaprufur fyrir sökkulefni ná aldrei að sýna nákvæmlega réttan lit og áferð. Þær eru því aðeins til viðmiðunar.

Arpa lagerlitir